Miðlun fasteignir 412-1600 kynnir: jörðina Hólakot, Eyjafjarðarsveit ca 30 mín akstur frá Akureyri . Stærð lands er tilheyrir Hólakoti er talin vera um 250-260 hektarar með öllu hugsanlegu landi. Ræktað land er 25 ha og þar fyrir utan er talsvert girt óræktað land. Mikil vinna hefur verið lögð í girðingar, landið talsvert hólfað niður, og er sérlega hentug fyrir hestamennsku og ræktun hrossa. Húsakostur er eftirfarandi. Hesthús byggt 1982 fyrir 18 hross í eins og tveggja hrossa stíum, var upphaflega byggt sem fjós. Hesthús byggt 1985 fyrir 14 hross allt einsog tveggja hesta stíur. Var upphaflega nýtt sem fjárhús. Við hesthúsin eru 4 gerði og nokkur hólf til beita. Gripahús byggt 1977 og er um 100 fm nýtt í dag undir ýmislegt. Hlaða byggð 1977 er í dag nýtt sem reiðvangur og hnakkageymsla. Gamla íbúðarhúsið er í dag nýtt sem geymsla og nýtist varla sem annað. Einnig er braggi án vatns, nýttur sem geymsla/vélageymsla og kynntur með blásara. Íbúðarhúsið,234fm er á tveimur hæðum, steypt neðri hæð og efri hæð timburhús sem skiptist eftirfarandi: Efri hæð : skiptist í forstofu, gang/hol með nýlegu plastparketi á gólfi,rúmgóðri stofu með plastparketi, Eldhús er sérlega rúmgott með eldri ágætri spónlagðri innréttingu og góðum borðkrók. Baðherbergi er nýlega búið að endurnýja, flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkari,vegghengdu salerni og hvítri innréttingu. svefnherbergi á hæðinni eru fjögur. Á neðri hæð er nýlega búið að standsetja tveggja herbergja íbúð sem skiptist í gang, svefnherbergi,baðherbergi,stofu/eldhús. Einnig er fyrir framan íbúð eitt svefnherbergi,þvottahús með sérinngangi og talsvert geymslupláss sem klárlega mætti nýta á ýmsa vegu, er í dag nánast tilbúið til innréttinga. Ekki er hitaveita á svæðinu og húsnæði kynnt með rafmagni. Sérlega hentug jörð fyrir hestaræktun, um 30 mín akstur frá Akureyri, svæði með mikla framtíðarmöguleika. Nánari upplýsingar veitir Gunnar 844-8001 eða gunnar@midlunfasteignir.is


